Jæja núna er komin Nóvember. Það þyðir að það er bara einn og
hálfur mánuður þangað til ég kem heim. Ég er farin að hlakka svo
til. Það verður gott að fá smá að knúsa fjölskylduna og hitta allt
fólkið heima. Við komum til íslands í kringum 20 og verðum í viku.
Það verður sko gott. Héðan frá Svíþjóð er samt mest lítið að
frétta. Ekki ennþá byrjað að snjóa sem er frekar svekkjandi. Ég var
svo viss um að við fengjum mikinn snjó hérna úti en svo virðist
ekki vera. Það kom smá snjór á laugardaginn en hann var farinn um
kvöldið þannig að sú gleði stóð ekki lengi. Skólinn gengur bara
sinn vanagang. Ég fór í bænasamtal á föstudaginn og það var
rosalega gott. Við erum nenfilega í bænaviku núna og þá fá allir
sem eru á U1 (sem ég er á ) bænaviðtal sem er í einn og hálfan
tíma. Ég get alveg sagt að það hefur mikið gerst síðan þá. Rosalega
gott og ég er mjög glöð með það.
Á föstudaginn fórum við Jack og Sara til Sigtuna og þar fórum við
að skoða stað fyrir brúðkaupið okkar Jack. Já, ég held að ég
hafi ekki sagt það hér en við Jack erum að fara að gifta okkur
næsta sumar. Þannig að þá vitiði það

Við fórum á
rosalega fallegt hótel. Það er í gamaldagsstíl en það er samt 5*.
Ég var alveg heilluð af staðnum. Hótelið er hjá stöðuvatni þannig
að þetta er voða rómantískt allt saman. Svo núna er það bara að
prenta út boðskortin og þá er stressið búið í bili. En bara í
bili.
Þessi helgi var Halloween helgi. Ég og Sara fórum út
í búð á laugardaginn til að kaupa nammi til að geta gefið
krökkunum. Svo settum við það í voða fallegan bolla og svo biðum
við. Kvöldið endaði á því að enginn kom svo við eigum núna
fullt af nammi sem að við vitum ekkert hvað við eigum að gera við

hahahahahaha Ætli ég endi ekki með því að fitna á því.
það komu reyndar krakkar til okkar á fimmtudaginn. Það
voru 3 litlir strákar sem bönkuðu á hurðina hjá okkur og sögðu
: trick or treat! Ég og Sara vorum náttúrulega ekki tilbúnar í að
gefa nammi þar sem Halloween var ekki fyrr en núna um helgina. Sem
betur fer hafði mamma komið með lakkrís í risa poka
þegar hún kom hingað til mín þannig að við náðum í pokan
og sögum rosalega stoltar: Det kommer fra Island. Strákarnir
voru ekki beint hrifnir af þessu en við lokuðum hurðinni ekkert smá
stoltar. Daginn efitr þegar við vorum að fara í skólann sáum
við líka þessa lakkrísslóð fyrir utan íbúðina og alveg út... Við
hlógum svo mikið að ég já... litlir krakkar í Svíþjóð kunna
greinilega ekki að meta íslanskan lakkrís. En út af þessu
þá ætluðum við að vera svo rosalega tilbúnar um helgina.
En ætli strákarnir hafi ekki varað vini sína og sagt þeim, ekki
fara í þessa íbúð þær eru með ógeðslegt nammi

hahahahahahaha
Vigdís mamma hennar Önnur Rósu er búin að vera hérna í viku. Hún
kom til okkar á laugardginn með pizzu með sér. Það var rosalega
gaman að hitta hana og við spjölluðum um allt milli himins og
jarðar. Hún er svo yndisleg. Hún veðrur pottþétt þegar ég kem heim
um jólin
En ég man ekki eftir fleiri fréttum í bili þannig að ég segi
bara hej då.
luv, luv.... Thea